herra Friðrik punktur is
03.09.2006 23:31:41 / Friðrik Már Sigurðsson

Ég er fluttur á blog.is

Vegna fjölda áskorana hef ég ákveðið að fara að blogga aftur, en ég tek upp nýja síðu vegna betra kerfis.

Hittumst á http://fridrikmar.blog.is/blog/fridrikmar/

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 11:47:06 / Friðrik Már Sigurðsson

Þátttaka óskast!

Nú fer hver að verða síðastur í því að segja skoðun sína á því hvort ég eigi að fara að blogga aftur eða ekki. Einn hefur sagt skoðun sína á þessu efni hingað til, en það er hinn geðprúði Hlynur Gauti sem þó virðist ekki átta sig á spurningunni. Ég vil minna ykkur á að frestur til  að segja skoðun sín og taka þátt er til fimmtudagsins 10. ágúst. Lifið heil.

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 13:14:28 / Friðrik Már Sigurðsson

Á ég að blogga aftur?

Nú er æsispennandi könnun í gangi á þessari síðu. Endilega takið þátt! Þeir sem segja skoðun sína á þessu málefni, komast sjálfkrafa í pott og verðlaunin eru ekki af verri endanum.
Viðkomandi hlýtur ferskeytlu kveðna samkvæmt íslenskum braghætti, um efni af eigin vali. Gistingu fyrir einn og morgunmat í svefnsófanum mínum, hvar sem hann verður nú staddur næsta vetur. Síðast en ekki síst fær sigurvegari þessarar keppni skeifnapar sem var undir mínum besta hesti nú í vetur. Svo það er til mikils að vinna!

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 14:57:25 / Friðrik Már Sigurðsson

Spurning til lesenda

Nú hefur verið virkjuð skoðanakönnun hér á síðunni. Á ég að fara að blogga aftur? Ef enginn hefur kosið í þessari könnun eftir mánuð mun internetið eyðast ásamt öllum gögnum í Þjóðskjalasafninu.

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 12:22:45 / Friðrik Már Sigurðsson

Ritstjóraskipti á blog.central.is/fridrikmar

Vegna fjölda áskorana hef ég sagt upp störfum sem ritstjóri vefsíðunnar blog.central.is/fridrikmar frá og með deginum í dag. Ég vil þakka lesendum síðunnar fyrir lesninguna á undanförnum árum og óska þeim alls hins besta í framtíðinni.

Nýr ritstjóri blog.cetntral.is/fridrikmar hefur verið ráðinn og kemur það í hlut Sigurðar Kára Kristinssonar að ritstýra síðunni.

Sigurður Kári mun láta af störfum sem alþingismaður og segja sig úr eftirtöldumnefndum af þessum völdum:
Allsherjarnefnd Alþingis,
Iðnaðarnefnd
Menntamálanefnd
Sérnefnd um stjórnarskrármál
Íslandsdeild Norðurlandaráðs

Fyrri störf Sigurðar eru þessi:
Forseti Nemendafélags Verzlunarskóla Íslands 1992-1993. Formaður Orators, félags laganema 1995-1996. Framkvæmdastjóri lögfræðiaðstoðar Orators 1997-1998. Fulltrúi stúdenta í háskólaráði fyrir Vöku, félag lýðræðissinnaðra stúdenta 1995-1997. Í stjórn Heimdallar 1995-1997. Í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1997-1999, formaður 1999-2001. Í miðstjórn og framkvæmdastjórn Sjálfstæðisflokksins 1999-2001. Í stjórn Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum frá 2002.
Lögfræðinám við Kaþólska háskólann í Leuven í Belgíu 1997. Lögfræðipróf HÍ 1998. Hdl. 1999.
Sigurður starfaði á lögmannsstofu Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl. meðfram laganámi. Fulltrúi á Lex lögmannsstofu 1998-1999, hdl. þar frá 1999. Stundakennari við Iðnskólann í Reykjavík 2001-2002.

Ég vil óska Sigurði Kára velfarnaðar í nýju starfi.

Friðrik Már Sigurðsson


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 10:27:23 / Friðrik Már Sigurðsson

Tilkynning!

Þessi vefsíða hefur verið ritskoðuð af Ríkisstjórn Íslands og Sameinuðu Þjóðunum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.11.2005 23:18:12 / Friðrik Már Sigurðsson

Undur og stórmerki

Ég hélt uppá 25 ára afmælið mitt í félagsheimilinu Hlöðum á Hvalfjarðarströnd síðasta laugardag. Ljúffengar veitingar voru á boðstólum og skemmtiatriði voru í hönum ýmissa gesta sem voru um 200 talsins. Hljómsveitin Svitabandið lék fyrir dansi. Tilviljun ein réði því þó að árshátíð Landbúnaðarháskóla Íslands var á sama degi, stað og tíma.

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.11.2005 12:01:19 / Friðrik Már Sigurðsson

The Zutons

Hljómsveitin The Zutons er í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana. The Zutons kom fram á Iceland Airwaves nú í haust. Platan "Who Killed The Zutons" er stútfull af frábærlega sömdum og fluttum lögum og mæli ég með henni. Þessi plata er í svipuðum stíl og platan "Devil's Deal" sem þeir gáfu út áður en stíll þeirra hefur greinilega aðeins þróast á milli þessara platna.

Þeir sem hafa áhuga á því að kynna sér The Zutons betur geta kíkt á vefsíðu þeirra http://www.thezutons.co.uk/zuteconstruct/


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.10.2005 13:15:08 / Friðrik Már Sigurðsson

Staðfest fyl!

Loksins Loksins hefur verið staðfest fyl í hryssu hjá mér sem var hjá Gígjari frá Auðsholtshjáleigu. Þegar hefur verið staðfest fyl hjá hryssum sem voru hjá Gelli frá Árbakka og Gaumi frá Auðsholtshjáleigu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2005 18:06:52 / Friðrik Már Sigurðsson

Ómerkilegar fréttir!

Það er ekki mikið af frétta af mér. Fór suður um helgina, í mat til mömmu og pabba og keypti einnig nokkuð af nauðsynjavörum. Svo var líka að opna hér á Hvanneyri þessi líka ljómandi sveitakrá. Gott að skella sér á hana við tækifæri. Próf eru í næstu viku og annarlok. Ég er enn með hesta hér á Hvanneyrinni þó að ekki hafi viðrað til þess uppá síðkastið, þá vonast ég til að geta tekið skorpu í hestunum með batnandi veðri.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2005 12:23:40 / Friðrik Már Sigurðsson

Stóðréttir í Víðidal og fleira gaman

Já það voru stóðréttir í Víðidal um helgina. Mikið grín, mikið gaman, mikið spaug. Allir skemmtu sér vel. Sent bráðum inn link á myndir frá helginni.

Við skötuhjúin fórum gangandi á Hestfjall um daginn, en það heitir fjallið sem er á milli Skorradals og Lundareykjadals og er fyrir ofan Hvannneyri. Þeir sem vilja sjá myndir úr ferðinni geta klikkað á vefslóðina http://public.fotki.com/fridrikmar/hestfjall/

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2005 16:36:08 / Friðrik Már Sigurðsson

Ég var klukkaður?

Hvað er nú það? Jú, þetta klukk dæmi gengur eins og eldur í sinu um vefheiminn og klukkaði Elín mig um daginn þannig að ætli ég verið ekki að svara því.

Klukk snýst um það að skrifa 5 staðreyndir um sig á bloggið og klukka svo 5 aðra í kjölfarið. Skemmtilegt ekki satt! Allavegana þá ert þú enn að lesa þannig að þú hefur ekki tapað áhuganum á þessu ennþá.

Staðreynd nr. 1.
Ég er fæddur í Kaupmannahöfn, höfuðborg Danaveldis.

Staðreynd nr. 2.
Þrátt fyrir að margir haldi því fram þá er ég ekki sonur Mick Jagger.

Staðreynd nr. 3.
Ég á 2944 lög inni á iTunes og tekur 7.8 sólarhringa að hlusta á þau öll.

Staðreynd nr. 4.
Ég á mér ósýnilegan vin sem ég hef reyndar ekki séð lengi!

Staðreynd nr. 5.
Staðreynd nr. 4 er uppspuni frá rótum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.09.2005 12:50:01 / Friðrik Már Sigurðsson

Nú er Guttormur allur

Nautið víðfræga, Guttormur frá Eystri-Sólheimum, var felldur í morgun, enda orðinn 13 vetra gamall. Von er á 25 afkvæmi hans í heiminn á næstunni, en líklega er hann þekktasti nautgripur Íslands fyrr og síðar.
Þeim sem vilja heiðra minningu Guttorms er bent á að grilla úti um helgina.

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.09.2005 12:55:03 / Friðrik Már Sigurðsson

Tilkynning!

Þessi vefsíða hefur verið ritskoðuð af Ríkisstjórn Íslands og Sameinuðuþjóðunum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.08.2005 17:11:00 / Friðrik Már Sigurðsson

Tónlistarverðlun MTV

Green Day kom, sá og sigraði á MTV tónlistarverðlaunahátíðinni sem haldin var í ónefndu landi í heimsálfu langt, langt í burtu. Þeir félagar í Green Day hafa notið mikilla vinsælda í kjölfar síðustu hljómplötu sinnar American Idiot. Ég man fyrst eftir Green Day fyrir um 10 árum síðan þegar þeir gáfu frá sér plötuna Dookie og lagið When I come around var geysivinsælt um tíma. "Pönk"rokkararnir í Green Day hafa töluvert uppfært sig síðan þeir komu fyrst fram og hafa verið sakaðir um að stela töktum og svipmóti frá yngri hljómsveitum. Þetta hefur samt skilað þessum  glæsilega árangri og miklu vinsældum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5